logo


Þjónusta Salon Ritz Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Meðferðir
Salon Ritz býður upp á allar almennar snyrtimeðferðir og er markmið stofunnar að bjóða upp á faglega og persónulega þjónustu í tengslum við þær. Meðal meðferða sem Salon Ritz býður upp á eru litun og plokkun, fótsnyrting, handsnyrting, IBD og Ez Flow gervineglur og sérhæfir stofan sig í andlitsböðum frá Lanéche. Allar meðferðir eru unnar af faglærðum snyrtifræðingum.

 

Vörur

Salon Ritz notar eingöngu hágæða snyrtivörur í sínum meðferðum, Lanéche andlitsvörur sem henta bæði konum og körlum en Lanéche býður einnig upp á líkams- og sólarlínur. Í vaxmeðferðum er Gigi vax línan notuð og til að styðja við tímann eftir meðferð býður Gigi einnig upp á krem sem viðheldur árangri hennar. Stofan býður upp framúrskarandi naglavörur frá IBD og Ez Flow, sem hvorttveggja eru heimsþekkt merki. Einnig býður stofan upp á förðunarlínu frá Golden Rose.

 

Ráðgjöf

Viðskiptavinum Salon Ritz gefst kostur á að leita til starfsfólk stofunnar um ráðgjöf vegna umhirðu húðarinnar, meðferðir eða förðun. Miklu máli skiptir hvaða vörur eru valdar í hverju tilviki fyrir sig og getur starfsfólk gefið leiðbeinandi ráð þegar leitað er eftir því.

 


Stjórnað af Joomla!. Designed by: Free Joomla Template, website hosting. Valid XHTML and CSS.